If god brings you to it, he´ll bring you through it

Erlublogg

08.10.2007 09:32:14 / *garfield*

hallóóó


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 08:29:13 / *garfield*

It's my party and I'll cry if I want to!

HÆhæ:)
Hér  er allt gott að frétta, fjarnámið mitt er byrjað:) Ég er að taka 16 einingar; félagsfr., dönsku, vélritun, næringafr. íþróttafr. og íslensku. Þetta er allt súper góðir áfangar:)
Annars er ég bara búin að vera að plana afmælið hennar Lóu minnar. Hún fær að bjóða nokkrum stelpum á föstudagskvöldið. Þær verða bara 7 stk og ætla að hafa dans, nammi, pizzu og fjr:) svo verður aðal afmælis veislan á sunnudeginum, 4.feb.
Hér hefur ríkt sorg í viku:( Hann ástkæri Lubbi okkar er dáinn. Nýrun í honum hættu að virka þannig að hann fékk að fara aftur í "húfuna hans Guðs" eins og Lóa segir:)
Og Lóa er alveg viss um að það sé partí uppi hjá guði núna, því Lubbi var hrókur alls fagnaðar:)
Þannig að við erum bara fjögur eftir á þessu heimili. Annars er ég aðeins farin að velta því fyrir mér hvar við munum búa eftir að þessi íbúð selst, vona bara sem heitast að við getum verið hér sem lengst:)
Jæja ég hef ekkert meira að segja, en endilega commentið:) 

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 09:52:59 / *garfield*

píkabú:)

Hallú:) já ég er á lífi, thank god!
Ég er búin að vera óttalega slöpp í nokkra mánuði en ég er að reyna að lagast:)
Allavega, þá eru jólin komin og farin, allt var gott og gómsætt. Við vorum hjá mömmu yfir jólin en heima um áramótin. Við átum of mikið og sváfum of mikið en MIKIÐ var það gott!!
Ég er að fara í fjarnámið tek 16 einingar í stað 9 einsog alltaf, en ég fer eflaust ekki að vinna strax, get það barasta ekki:(
Lóa er hin hressasta allt gengur vel hjá henni, ég skrifaði færslu þar líka áðan þannig að þið kíkið á það :)
Annars er ekkert að frétta af okkur, ég er bara búin að vera veik síðan í júlí og tek lyf og reyni bara að þrauka, er orðin dáldið þreytt á því að þrauka, vil bara fá lífið mitt aftur! og engin skilur mig né fattar þetta þannig að ég er dáldið ein! Ég vil og vona að árið 07 verði gott og gæfuríkt.
endilega hafiði samband.
kveðja, Erla rugludallur

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 09:14:42 / *garfield*

úpps

hehe, gleymdi einu, hvað haldiði að Unnur María hafi gert mér í gærkvöldi!?!?!?

Hún hringdi í mig:

Ég: hæ

U:hæ, heyrðu, ég er að fara inni í búð og ætlaði að fara að búa til sandkökuna en man ekki hvað er í henni, nenniru að segja mér til?

Ég: uh, já, það er flórsykur, rjómaostur, vanillubúðingur ....

U: Bíddu ég ætla að spyrja hvað búðingurinn er geymdur...

Ég: æi unnur, bíddu það er verið að banka...

ég fer til dyra og opna, Unnur og Helga Standa fyrir utan og ég ennþá að tala við unni í símanum!!!!

hahahahahahahahhehehehehehehehhíhíhíhíhíhítítítítítí

Algjör gikkur! ég visii ekki hvað ég átti að segja eða gera! stóð bara einsog asni í forstofunni! En þetta var æði hún kom og stoppaði í klukkutíma, sem er náttla bara snilld!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 08:42:09 / *garfield*

gúd morning

Hæhæ, héðan er allt gott að frétta:)

Ég er á góðri uppleið:) svo byrjar skólinn á morgun, ég tek, ensku 503 félagsfr.103 og aukaáfanga í sálfræði, 343 held ég:)

Lóa mín byrjaði í skólanum sínum á fimmtudaginn! JÁ litla barnið mitt er byrjað í skóla8|

Það gengur rosa vel, hélt kannski að hún myndi hanga í mér allan daginn því ég vinn í skólanum en henni er alveg sama, leikur sér bara með sínum vinum.

Já svo fór lóa að sjá Litlu hryllingsbúðina í leikhúsinu í gær, hún fór með Olgu og Steina. Henni fannst æðislega gaman og var barasta ekkert hrædd:) Svo átti Steini afmæli í gær, gáfum honum geggjaðan myndaramma og blóm, og svo átti mágur minn hann gísli afmæli í síðustu viku og var með kaffi boð í gær þannig að hann fékk líka myndaramma og blóm, ohh ég er svo hugmyndarík:):haha:

Jæja, María Katrín gisti hérna hjá okkur lóu og núna eru þær að leika sér þannig ég ætla að fara að ryksuga:) haha kl. er korter í 9:)

jæja síja leiter


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 16:12:45 / *garfield*

well....

jæja, í rauninni er ekkert merkilegt að frétta. Ég er byrjuð að vinna aftur, Lóa er bara hist og her í sveitinni í pössun því ekki vill hún fara í leikskóla því hún er "orðin Skólastelpa!" hahaha Ég er öll að koma til, er enn þá með smá erfiðleika en þetta kemur allt. Mamma er búin að vera geggjuð dugleg í garðinum mínum, búin að bera á alla girðinguna og laga allt beðið:) rosalega smart! Fjarnámið byrjar 3.sept þannig að ég þarf að fara að redda öllu námsefninu:( þoli ekki að standa í því veseni, redda bókum! annars er ekkert að frétta, Lóa byrjar 30.ágúst í skólanum og vill endilega byrja á að læra á fiðlu en það er ekki kennt í skólanum hérna bara í bænum, en kannski vill hún bara læra á þverflautu, sjáum til með það allt, ég vil bara ekki að hún hafi of mikið að gera, mér finnst alveg nóg að einbeita sér að skólanum fyrsta árið sitt, það er alveg nógu spennandi. jæja, Mæja systir kom frá Danmörk í fyrradag þannig að ég ætla að heyra í henni og svo eru mamma og vinkona hennar að koma á eftir með domino's EXTRA pizzu á eftir mmm... bæjó

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 09:42:54 / *garfield*

hallú

Ég hef ekkert nennt að blogga undanfarið:$ En alla vega þá er ég öll að braggast, er ekkert orðin góð en öll að koma til. Er enn á lyfjum og verð það eitthvða lengur:(

En nú er versló að byrja og það er ekki laust við að það sé aðeins orðið meiri trafík á Akureyri! Unnur og Steini koma norður á föstudag og Afi Gísli kemur í dag. Lóa er búin að bíða og bíða eftir tívolíinu. Það kemur í dag og ætli hún fái ekki að fara í nokkrar ferðir.

Ég fer nefnilega ekki á djammið þessa helgina og þá hef ég nægan tíma í annað. Ætlum að fara pottþétt í Vaglaskóg á laugardag til ömmu hennar Unnar og afa.

Lóa svaf í tjaldi í nótt með Lottu Karen vinkonu sinni. Þeim fannst það ægilegt sport. Svo eru þær búnar að plana pylsupartí í dag kl.18 í garðinum mínum :lol: Eru búnar að bjóða 10 stelpum:)

Jæja annars bið ég að heilsa, og bið alla að aka varlega og koma heil heim.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 10:08:51 / *garfield*

fréttir af Lasarusi:)

Jæja, Ég fór til Friðriks læknis í gær og hann heldur að ég sé með vélindabakflæði og asma. Það sem gerðist var að ég hef verið útkeyrð og stressuð ásamt því að sýrurnar í maganum náðu upp í hóstina, sem gerði það að verkum að mér fannst sem ég gæti ekki andað. Þá varð ég hrædd og fór að ofanda og þá fór allt til helv**is.

Ég fékk lyf sem ég þarf að taka í dálítinn tíma og svo verður séð til. En ég þarf að passa það sem ég læt ofan í mig, ekkert KAFFI!:( ekkert súkkulaði, piparminta, mikið kryddaður né brasaður matur og nikótín. Eins á að gæta áfengi í hófi.

Ég þarf að sofa með a.m.k. 12 sm hátt undir hausnum og ekki borða stórar máltíðir, frekar margar litlar og alls ekki borða 3 tímum fyrir svefn.

En læknirinn ráðlagði mér að halda dagbók yfir venjur mínar til þess að sjá hvenær og hvað gerir mig mest veika.

En ég er ánægð með að vera hætt að reykja núna er áttundi dagurinn minn reykfrír og ég er ekki frá því að lungun mín brosa:):)

En rosalega er gott að vita hvað er að og þurfa ekki að vera í óvissu. Þannig að núna verða að vera breytingar á lífinu, sem mér líkar við, leiðinlegt samt að ég þurfti "næstum" því að drepast til þess að gera eitthvað í málinu.:$

Já, þannig standa málin.

Lóa mín er búin að vera útí eyju með Olgu og Agnethe síðan ég varð veik og það er búið að vera þrusu stuð hjá henni. Hátíðin í Hrísey var um helgina, ég er ógeðslega sár yfir því að hafa misst af henni en "there's always next year"

Ég verð bara í afslöppun út næstu viku en þá kemur lóa heim. Það gæti verið að við förum suður um versló eða alla vega áður en við lóa byrjum í skólanum! já Lóa er að fara í skóla. Belive it! litla stóra stelpan mín8|

jæja, skjáumst seinna:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 19:33:26 / *garfield*

fréttir

jæja, í gærhvöldi fékk ég kast, náði varla andanum frá kl. 00 - 04, hrikalega varð ég hrædd, þetta er svo sárt! En svo vaknaði ég um 10 og var ennþá slæm. Ég hringdi um 14 upp á spítala og talaði við einn lækninn sem hefur verið með mig. Ég sagði honum bara að ég væri að gefast upp, að ég gæti ekki lengur haldið þetta út. Hann sagðist ætla að kíkja betur á málið og hringja í mig.

Klukkutíma seinna hringdi Friðrik lungnasérfræðingur í mig, sá sem ég átti að fara til á fimmtud. n.k.

Honum fannst þetta allt mjög skrítið og vildi endilega fá mig til sín á morgun í hádeginu upp á spítala. Hann sagðist ætla að gera allt í sínu valdi til þess að lækna mig og ég fékk barasta tár í augun, því ég get þetta ekki lengur!

Þannig að núna tel ég niður mínúturnar og vona til guðs að ég lagist:lol:

jæja kem með fréttir á morgun :) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 18:22:09 / *garfield*

I'm back

Jæja, þar fór það:( Á laugardaginn lögðum við af stað til hríseyjar um 14. nokkrum mínútum seinna var ég í babú bíl á leið upp á FSA. Þetta gerðist snöggt án nokkurs fyrirvara. Ég fann allt í einu að ég gat ekki andað, ég blánaði á vörum og dofnaði alls staðar! ég hélt ég væri að deyja! Ég varð svo hrædd og eina sem ég hugsaði var að hver sæi um lóu mína:cry:


Ég var allan Laugardaginn upp á slysó í rannsóknum.  Þegar ekkert var fundið var mér gefið róandi og bréfpoka og sagt að þetta myndi jafna sig. Ég fór út í hrísey um hvöldið og faðmaði Lóu mína. Mér var sagt að hætta að reykja sem ég hef gert, ekkert reykt síðan kl.14 á laugardag!!:):)

Á mánudag tók ég hádegis ferjuna í land og fór aftur upp á spító, ennþá í andnauð, ósofinn og með fráhvörf! Þá var ég send í fleiri rannsóknir en ekkert fannst, en mér var gefið asmalyf og annan bréfpoka. Þá fór ég bara heim og mamma átti að passa mig:$

Jæja, á miðviku dag var ég ennþá slæm, ekkert búin að lagast þannig að ég fór eina ferðina til læknis! Læknarnir skilja ekki afhverju ég get ekki andað eðlilega því það er búið að senda mig í hjartalínurit, lungna röntgen, öndunarpróf, athuga skjaldkirtil, kólesteról, hvítu og rauðu blóðkornin, hormónin og miklu fleira sem ég get ekki skrifað. Ekkert finnst! Mér var gefið 2 vikna skammtur af róandi einn helvítis bréfpoka í viðbót og auka skammtur af amsalyfi. Svo á ég að fara til lungna sérfræðings á fimmtudag eftir viku.

Eftir allar þessar hremmingar og nánast yfirlið því ég næ stundum ekki nægu lofti og stundum ofmiklu lofti þá halda læknarnir að ég hafi fengið ofsakvíðakast, ég fór inná doktor.is og fann þar ágætisgrein um þetta fyrirbæri, lýsir því nokkuð vel en ekki hversu sárt það er að fá þetta!

Jæja eftir að hafa haldið það í nokkra daga að ég sé að deyja þá hef ég haft ágætir tíma í að velta lífinu fyrir mér
Það er ýmislegt sem ég þarf að bæta og laga og ég er byrjuð að reyna. Sumt er erfiðara að bæta aðallega vegna stoltsins eða sársauka sem það hefur valdið. Ég veit það samt að ég vil ekki vera án systra minna, þær eru mitt ljós á dimmum tímum og gleði og hlátur er eitthvað sem er alltaf til staðar hjá okkur. Vildi bara að ég vissi hvernig að hægt sé að laga sumt!

Þannig að nú er bara að reyna að laga allt. Samt sagði læknirinn við mig að ég má ekki við neinu stressi né álagi, en hvernig er hægt að breyta sínu lífi til batnaðar án þess að hafa fyrir því?? Ef einhver veit það þá má hann endilega kommenta!

Jæja þá er þetta gott í bili, sjaldan verið svona dramatískt á þessu bloggi, en eins og ein manneskja sem er mér kær segir" ohh Erla þú ert svo mikil dramadrottning:)"

Heilræði/ speki dagsins:

Ekki gleyma að anda! trust me!

kveðja Erla LOFTBELGUR:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 11:36:22 / *garfield*

hello and goodbye

Bara smá öpdeit:)

Við lögðum af stað í suðurferðina miklu 30.júní í 20°hita og bongóblíðu. Lóa varð

bílveik í staðarskála umdæmi og þá tók við rigning en síðan góð eftir það. Við komum

suður til gísla um 16.30 og vorum þar til 17.15 og fórum þá og hittum Unni. Síðan lá

leiðin tilhveragerðis þar sem komið var við í bónus og nammibúðinni. Síðan var farið útí

brekkuskóg. Við fundum bústaðinn um 19.30 og á móti okkur tók þessi gríðarstóra

hunangsfluga. Ég hringdi á riddaraliðið og um klukkutíma seinna komu Harpa, Allan,

Auður og Steini til okkar bjargar. Stelpurnar fengu að fara í pottinn og voða gaman.

Daginn eftir í rjómablíðu Fóru þau og Unnur, Steini og Elvar Ágúst og Svo komu

aðeins seinna Helga, Viktoría, Anton og Sigmar Óli. Við grilluðum gegjaðan mat og

eftir að öll börnin voru sofnuð var farið í pottin með drykki. Vorum í pottinum í tæpa

2 tíma  en fórum svo inn að spila. Daginn eftir var bara leti, pönnukökur, grillað, spilað

og farið í pottinn.

Svo fóru Þau öll og Gísli kom til okkar í staðinn. Á mánudeginum var farið í bíltúr um

svæðið. Móður fjölskyldan mín er þaðan og við fórum að skoða æskuheimili mömmu og

svæðið þar í kring. Síðan gerði ég pönnsur og svo fórum við stelpurnar til selfoss í

sund. Á meðan gerði Gísli dýrindis læri. Eftir mat var bara aflöppun og spjall. á þriðju

deginum fór gísli um 17 í grenjandi rigningu og +Asta Sólveig og Hjálmar Ingi og

Hanna Líba og Elías  komu og svo Unnur og Elvar. Það ringdi non-stop í sólarhring. Við

gátum ekki grillað né farið í pottinn, en létum það duga að "grilla" innií ofni geggjaðan

mat. Svo var spilað og drukkið um kvöldið rosalega gaman. Daginn eftir ennþá í

rigningu ákváðum við að hætta í bústaðnum og fara í bæinn.

Við komum til Unnar og Steina um 17 og þá var bara slappað af borðað og sofið.

Fórum til Hörpu daginn eftir og í smára lindina. KEypti fjórar flíkur á Lóu og eina á

mig. Síðan um kvöldið fórum Við lóa og auður í tívolíið.

Á föstudeginum kom Eva suður og og það var bara slappað af um hvöldið. Á laugard.

var farið á KFC í mosó og stelpurnar og Steini litli skemmtu sér vel. Um kvöldið ætlaði

ég og Unnur að djamma og ég ætlaði að hitta æsku vinkonur mínar, en það gekk ekki

því Agnethe og Lóa urðu veikar um nóttina. .

Á sunnudeginum, varð ég að fara með þær báðar á læknavaktina, Lóa var með sýkingu

í eyranu og hita, Agnethe var með streptókokka og hita og allt stíflað í maganum. Ég

þurfti að fara með hana á barnaspítalann til að losa aðeins um það. Það gekk og um 16

vorum við komnar úr því. þá var öllu skellt í bílinn og lagt af stað. Við komum heim um

23:) Stormur og mamma voru voða glöð að sjá okkur.

Það eru skemmtilegar myndir inn á síðunni hennar Lóu, endilega kíkja á það. Við erum

að fara útí Hrísey á morgunog verðum í 2 vikur. reyni að gera smá öpdeit ef ég kemst

í tölvu. Annars bara bið ég að heilsa í bili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 08:40:31 / *garfield*

hæ-bæ

jæja ég og lóa og agnethe erum að fara að leggja í hann, erum að fara í bústað í brekkuskógi. Unnur og co, Helga og co, kannski Ásta og Hanna komi og afi Gísli.

Mamma verður hérna heima að passa bú og dýr, Olga ætlar samt að vera eitthvað með Storm þannig að allt er önder kontról!

e3kki meiri fréttir fyrr en við komum til baka:)

bæjó: Erla

heilræði/speki dagsins:

Spennið beltin!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 09:27:23 / *garfield*

Hæhó og jibbíijei það er komin 17.júní

Til hamingju með daginn allir og gleðilega hátíð.

Í gær var húsið Hamborg afhjúpað með mikilli athöfn í miðbæ Akureyrar. Afi hennar Lóu, Steini, gerði það upp ásamt Pabba hennar Lóu og einum smiði í viðbót.

Þetta var alveg frábært:)

Svo var farið í mat til Olgu og Steina og svo fékk Agnethe að koma og gista. Lóa eralltaf að spyrja hvenær María Katrín komi frá útlöndum, saknar hennar og ég líka:cry:

Annars erum við að fara í dag í hádegismat til Olgu og steina svo förum við Lóa eitthvað í bæinn, fá blöðrur og svona, gaman að því. Svo er spurning um að grilla í kvöld?

Mamma er komin heim frá grímsey, sem er æði! Gott að hafa hana nálægt:)

Jæja ég bið bara að heilsa öllum nær og fjær.

heilræði/speki dagsins:

Lífið er aldrei svo slæmt í sinnu verstu mynd að því sé ólifandi og aldrei svo gott í sinni bestu mynd að því sé auðlifað.


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 09:39:32 / *garfield*

Öpp deitt:)

Já það er komið að smá öpp deiti.

ég er komin í sumar frí:):):):)

Ógeðslega er gott að vera í fríi. Þó að ég sé að vinna í tæpa 2 tíma frá 16-18 þá er yndislegt að vera búin í dagvinnunni:) Þarf ekki að mæta aftur fyrr en í lok ágúst:)

Það er helst að frétta að ég og Lóa fengum hreinræktaðan labrador hvolp, gefins á sunnudaginn síðasta. Við fengum hann um 15 þann dag og það var geðveikur gestagangur þann daginn. En hann sómir sér vel hér hjá okkur, lunna er alveg saman um hann, en bangsímon er öllu heldur varkárari gangvart þessu flikki:lol:

Þið getið séð myndir af honum á heimasíður dýranna minna með tengli hér við hliðina:)

Annars er bara gott að vera til, gott að vera í fríi, hlakka geggjað mikið að fá Evu og có tilbaka frá spáni, mamma er farin útí Grímsey að passa barn en von er á henni fljótt tilbaka:) Ég get ekki beðið eftir að komast suður í bústaðinn, hitta Unni, Helgu og Hörpu. Svo eru bara 2 vikur í að Lóa útskrifist úr leikskólanum!!! Já haldiði ekki að Lóa sé að fara að byrja í skóla í haust! Litla telpan mín orðin rosa stór8|

Jæja ekki gleyma að kíkja á heimasíðu Lóu og ALLS EKKI gleyma að kvitta fyrir ykkur:)

Heilræði dagsins:

 Besti vinur minn er sá sem þekkir galla mína en er samt vinur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 09:43:51 / *garfield*

HALLÓ

Jæja lang best að skrifa smá fréttir.

Ég er búin að hafa geggjað mikið að gera. Alla síðustu viku var ég að vinna, síðan var ég í annari vinnu, er að mála, síðan er ég að byrja í 3 vinnunni á þriðjudaginn, er að fara að þrífa leikskólann hennar lóu í 3 vikur. Þannig að ég á mér ekkert líf þessa dagana:)

Í gær var 2xfaldur dagur í vinnunni, það voru skólaslit þannig að ég var að vinna frá 08-20.00 12 tímar!!! Ég var geggjuð þreytt eftir það en þá fór ég í saumó-inn og var þar til 22.30. Lóa var bara úti að leika sér með vinkonu sinn á meðan, kom af og til inn til að fá sér gúmmulaði:)

Ég er geggjað ánægð með þessa löngu helgi:) Við systurnar ætlum að hittast í kvöld og grilla voða gaman að því:)

Ég klára vinnuna í skólanum eflaust á miðviku dag en gæti lengst til föstudag, sjáum til hvað maður verður duglegur að þrífa hann og ganga frá.

Annars kemur það í ljós í dag e'a á morgun um hvort við fáum voffa. Læt ykkur vita með það.

Annars erum við Lóa bara ligeglad með lífið, sundlauginn hér heima opnar á þriðjudaginn og þá verður sko þægilegt að geta bara sent Lóu í sund með vinkonum sínum. Svo er það nú svo merkilegt hér á Svalbarðseyri að sundlauginn er opin í 2 tíma á dag en þess á milli getur maður fengið bara lykla að henni. Maður borgar bara aðgangseyrinn og má vera eins lengi og maður vill, Þvílíkt þægilegt að geta það.  Þannig að allir sem heimsækja mig í sumar fá að fara í einka sund með mér.)hahahaha:)

Jæja ég er að spá í að fara út að labba, geggjað gott veður úti 15°stiga hiti og heiðskírt kl.09.40:)

p.s. Helga, ætlaru að koma með í sumarbústaðinn? En þú unnur? En allir hinir:):)8| 

Heilræði dagsins:

Góður vinur + súkkulaði = himnesk blanda:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 8 október